- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sigurmark Hörpu Maríu skaut Fram í undanúrslit

- Auglýsing -

Harpa María Friðgeirsdóttir innsiglaði Fram sæti í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ í handknattleik. Svellköld fór hún inn úr vinstra horninu 10 sekúndum fyrir leikslok, vippaði boltanum í Ingunni Maríu Brynjarsdóttur, markvörð ÍR, og skoraði markið sem reyndist skipta sköpum í fyrstu viðureign átta liða úrslita. ÍR-ingar náðu sókn á lokasekúndunum en lánaðist ekki að gera sér mat úr henni. Fram leikur þar með í undanúrslitum bikarkeppninnar í 25. sinn.


Fram var sjö mörkum yfir í hálfleik, 17:10, og hafði mest átta marka forskot, 17:9, að loknum 27 mínútna leik. ÍR-ingar sýndu á sér allt aðra og betri hlið í síðari hálfleik og tókst að vinna upp forskot Framara sem léku illa og virtust ætla að verja forskotið sem aldrei kann góðri lukku að stýra.

Sylvía Sigríður Jónsdóttir jafnaði metin fyrir ÍR þegar 25 sekúndur voru eftir af leiktímanum, 25:25. Framarar burðu Fram og skoruðu sigurmarkið.

Haldið áfram annað kvöld

Áfram verður leikið í átta liða úrslitum bikarkeppninnar annað kvöld. Víkingur tekur á móti bikarmeisturum Hauka í Safamýri klukkan 19 og Grótta fær KA/Þór í heimsókn klukkan 19.30. Síðasta viðureignin verður á miðvikudag þegar FH og Valur eigast við í Kaplakrika. Undanúrslitaleikir bikarkeppninnar fara fram miðvikudaginn 26. febrúar.


Mörk Fram: Harpa María Friðgeirsdóttir 6, Ásdís Guðmundsdóttir 6/1, Hulda Dagsdóttir 4, Dagmar Guðrún Pálsdóttir 4, Katrín Anna Ásmundsdóttir 3, Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín 2, Valgerður Arnalds 1, Sara Rún Gísladóttir 1.
Varin skot: Ethel Gyða Bjarnasen 12/2, 32,4%.

Mörk ÍR: Vaka Líf Kristinsdóttir 8/1, Sylvía Sigríður Jónsdóttir 5/3, Matthildur Lilja Jónsdóttir 4, Katrín Tinna Jensdóttir 4, Dagbjört Ýr Ólafsdóttir 3, Sara Dögg Hjaltadóttir 2.
Varin skot: Ingunn María Brynjarsdóttir 9/2, 50% – Sif Hallgrímsdóttir 6, 26,1%.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -