Sigursteinn Arndal þjálfari FH sat uppi í stúku og fylgdist með liði sínu þegar það vann nauman sigur á Aftureldingu, 30:29, í Kaplakrika í 20. umferð Olísdeildar karla í gærkvöld. Aron Pálmarsson stýrði FH-liðinu í fyrsta sinn sem aðalþjálfari, reyndar í íhlaupum.
Eftir því sem næst verður komist fékk Sigursteinn rautt spjald í undanúrslitaleik FH og Hauka í síðustu viku. Mun það vera ástæðan fyrir „fjarveru“ hans í gær.

Ekki sést glögglega á rafrænni útgáfu leikskýrslu leiks FH og Hauka í undanúrslitum bikarkeppninnar merki um að Sigursteinn né nokkur annar úr starfsteymi FH hafi fengið rautt spjald í leiknum.
Eins og fyrr segir vann FH leikinn við Aftureldingu eftir æsilega spennandi lokamínútur og er aðeins stigi á eftir Val sem situr í efsta sæti. Jakob Martin Ásgeirsson innsiglaði sigur FH með marki eftir hraðaupphlaup þegar 10 sekúndur voru til leiksloka. Hann hafði áður hirt upp lausan bolta sem tapaðist í sókn Aftureldingar. Ingvar Dagur Gunnarsson, leikmaður FH, varði í vörninni á allra síðustu sekúndu, markskot Árna Braga Eyjólfssonar.
Fram hleypti spennu í toppbaráttuna – Jakob skoraði á síðustu sekúndu



