- Auglýsing -
Sigvaldi Björn Guðjónsson er mættur í keppnissalinn í Jyske Bank Boxen fyrir bronsleikinn við Króata á Evrópumóti karla í handknattleik. Hann er í upphitunargallanum og virðist klár í slaginn. Þar með má nánast slá föstu að hann leiki með íslenska landsliðinu í leiknum mikilvæga.
Sigvaldi Björn var kallaður til Herning á fimmtudagskvöld og skráður í leikmannahóp íslenska landsliðsins snemma í morgun.
Sigvaldi Björn hefur leikið 85 landsleiki og skorað 230 mörk.
Þegar þetta er tilkynnt hefur keppnishópur Íslands ekki verið opinberlega tilkynntur.
Ljóst að koma Sigvalda Björns í leikmannahópinn er kostnað Teits Arnar Einarsson sem er í áhorfendastúkunni með kaffibolla.

- Auglýsing -


