Sigvaldi Björn Guðjónsson var á meðal markahæstu manna þegar lið hans Kolstad tapaði 26:33 fyrir Nantes í 12. umferð A-riðils Meistaradeildar Evrópu í Þrándheimi í kvöld. Þar með er Kolstad úr leik í Meistadeildinni á tímabilinu.
Fyrirliðinn Sigvaldi Björn skoraði sex mörk fyrir Kolstad og var næst markahæstur í leiknum. Sigurjón Guðmundsson lék um stund í marki Kolstad og varði eitt skot af sjö sem hann fékk á sig. Benedikt Gunnar Óskarsson lék ekki með liðinu vegna meiðsla.
Kolstad er áfram í sjöunda sæti A-riðils með fjögur stig og á af þeim sökum ekki lengur möguleika á að ná sjötta sæti, sem er síðasta sætið inn í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
Sporting Lissabon, með Orra Frey Þorkelsson innanborðs, er með tíu stig og á leik til góða og er því búið að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni, þar sem átta liða keppa um fjögur laus sæti í átta liða úrslitum.



