- Auglýsing -
Aron Pálmarsson og samerjar í danska meistaraliðinu Aalborg Håndbold komust í dag í átta liða úrslit dönsku bikarkeppninnar með sigri á HC Midtjylland, 36:29, á útivelli. Staðan var jöfn að loknum fyrri hálfleik, 16:16. Liðsmenn HC Midtjylland náðu að standa í stórliðinu framan af en leiðir liðanna skildu í síðari hálfleik.
Aron skoraði þrjú mörk. Jonas Samuelsson var markahæstur hjá Aalborg með sjö mörk og Kasper Kvist skoraði jafnmörg fyrir Midtjylland sem þar með er úr leik.
Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aalborg-liðsins.
- Auglýsing -