Danska meistaraliðið Aalborg Håndbold vann í dag sinn sjötta leik í dönsku úrvalsdeildinni þegar það lagði Skanderborg Håndbold, 29:26, á heimavelli. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Álaborgarliðsins sem hefur ekki tapað leik í dönsku úrvalsdeildinni né í Meistaradeild Evrópu á keppnistímabilinu.
Rúnar Kárason skoraði sex mörk í níu skotum og átti þrjár stoðsendingar þegar Ribe-Esbjerg gerði jafntefli, 26:26, á heimavelli gegn SönderjyskE. Rúnar átti stoðsendinguna í jöfnunarmarkinu, 26:26, þegar hálf önnur mínúta var til leiksloka.
Gunnar Steinn Jónsson átti tvær stoðsendingar fyrir Ribe-Esbjerg en náði ekki að skora mark í fimm tilraunum. Daníel Þór Ingason hafði hægt um sig eins og Sveinn Jóhannsson leikmaður SönderjyskE.
SönderjyskE situr í fimmta sæti með sjö stig og Ribe-Esbjerg er í 11. sæti af 14 liðum með þrjú stig.
Staðan í dönsku úrvalsdeildinni.