Eftir stórsigur á landsliði Eistlands í fyrri leiknum í dag á Opna Evrópumótinu í handknattleik kvenna, skipað leikmönnum 16 ára og yngri, þá gerði íslenska landsliðið jafntefli við landslið Lettlands í kvöld, 17:17. Lettar voru marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 11:10.
Næsti leikur Íslands verður í fyrramálið við færeyska landsliðið en Íslendingurinn Kristinn Guðmundsson er þjálfari færeyska liðsins. Færeyjar unnu Finnland í dag, 22:18, og var það fyrsti sigur færeysku stúlknanna á mótinu.
Mörk Íslands: Ester Amíra Ægisdóttir 4, Dagmar Guðrún Pálsdóttir 4, Þóra Hrafnkelsdóttir 2, Kristbjörg Eiríksdóttir 2, Rakel Dórothea Ágústsdóttir 2, Ágústa Rún Jónsdóttir 1, Arna Karítas Eiríksdóttir 1, Sólveig Þórmundsdóttir 1.
- Auglýsing -