Skjern leikur til úrslita við Aalborg Håndbold um danska meistaratitilinn í handknattleik karla. Skjern vann oddaleik liðanna í undanúrslitum, 28:26, á heimavelli GOG í Arena Svendborg í dag. Úrslitin kom á óvart því GOG lék vel á leiktíðinni og hafnaði í öðru sæti úrvalsdeildarinnar en Skjern hafnaði í áttunda sæti eftir misjafnt gengi.
GOG og vann fyrsta undanúrslitaleik liðanna, 25:19, á heimavelli. Leikmenn Skjern voru heillum horfnir í þeirri viðureign og þótt ekki líklegir til afreka. Annað kom á daginn í næstu tveimur viðureignum. Skjern vann með 11 marka mun á heimavelli og síðan oddaleikinn í dag.
Leikmenn GOG voru frískari framan af viðureigninni í dag og voru m.a. marki yfir í hálfleik, 16:15, eftir að hafa skoraði þrjú af fyrstu fjórum mörkunum. Öflugur varnarleikur Skjern-liðsins í síðari hálfleik skilaði liðinu forskoti og síðan sigri.
GOG leikur með við Arnór Atlason og liðsmenn hans í TTH Holstebro um bronsverðlaunin.