- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Slæmt tap í Færeyjum – bíða þarf morgundagsins

- Auglýsing -

Íslenska landsliðið tapaði með fimm marka mun, 35:30, fyrir færeyska landsliðinu í undankeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik í kvöld. Leikið var í þjóðarhöll Færeyinga, við Tjarnir. Færeyingar voru betri allan leikinn en tóku af skarið í síðari hálfleik, án þess að íslenska landsliðið, sem var tveimur mörkum undir í hálfleik, 18:16, fengi rönd við reist.


Með þessu tapi dró aðeins úr möguleikum íslenska landsliðsins um að tryggja sér farseðilinn á EM. Treysta verður á að Svartfellingar vinni Portúgal í Porto á morgun svo að íslenskur sigur á Portúgal á Ásvöllum á sunnudaginn nægi til að ná þriðja sæti riðilsins. Nái íslenska liðið þriðja sæti riðilsins eru góðar líkur á að farseðill á EM í desember verði tryggður. Fjögur af sex liðum sem hafna í þriðja sæti í riðlum undankeppninnar fljóta með tveimur efstu liðum hvers riðils í lokakeppnina.

Færeyingar eru hins vegar í góðri stöðu og eiga sæti í lokakeppni EM nokkuð víst.

Satt að segja náði íslenska liðið sér ekki á strik í 40 mínútur í dag. Fyrstu 20 mínúturnar tókst að halda í við ákafa færeyska liðsins með því að svara með mörkum um hæl. Eftir að veikleikar fóru að koma fram í sóknarleiknum þá tók færeyska liðið völdin. Varnarleikur Íslands var aldrei viðunandi. Ekkert fékkst ráðið við Jönu Mittún sem var besti leikmaður vallarins auk þess sem línukonan Pernilla Brandenburg lék lausum hala ásamt Maríu Pálsdóttur Nólsoy.

Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja


Mörk Íslands: Sandra Erlingsdóttir 7/6, Katrín Tinna Jensdóttir 5, Elín Rósa Magnúsdóttir 4, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 4, Díana Dögg Magnúsdóttir 3, Elísa Elíasdóttir 3, Katrín Anna Ásmundsdóttir 2, Andrea Jacobsen 1, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 8, 24% – Sara Sif Helgadóttir 2, 17%.

Mörk Færeyja: Pernille Brandenborg 12, Jana Mittún 7, Rannvá Olsen 5, Maria Pálsdóttir Nólsoy 4, Súna Krossteig Hansen 3, Brynhild Pálsdóttir 2, Natasja Hammer 2.
Varin skot: Annika Friðheim Petersen 10, 36% – Rakul Wardum 2, 14%.

Handbolti.is fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -