Þýski markvörðurinn Nikolas Katsigiannis sneri ansi óvænt aftur á völlinn með Hannover-Burgdorf þegar liðið fékk Frisch Auf! Göppingen í heimsókn í þýsku 1. deildinni um liðna helgi. Katsigiannis er 43 ára, lagði skóna á hilluna á síðasta ári og hafði síðast leikið í þýsku 1. deildinni, þeirri sterkustu í heimi, árið 2022 með Rhein-Neckar Löwen.
Veikindi innan herbúða Hannover-Burgdorf, þar sem Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari, ollu því að ákveðið var að kalla til hins grískættaða Katsigiannis, sem hefur starfað sem markmannsþjálfari liðsins frá því um miðjan janúar.
Annar markvarða liðsins, Joel Birlehm, þurfti frá að hverfa á leikdegi á sunnudag vegna veikinda. Hannover-Burgdorf ákvað að sækja ekki vatnið yfir lækinn og fékk Katsigiannis til þess að vera varamarkvörð í leiknum.
Lék hann í sex mínútur og 12 sekúndur í leiknum, sem Hannover-Burgdorf tapaði 22:28 á heimavelli. Katsigiannis hafði áður leikið með Hannover-Burgdorf frá 2010 til 2012 og lauk ferli sínum formlega síðasta sumar eftir að hafa leikið með TuS N-Lübbecke í þýsku B-deildinni.



