FH-ingar með Aron Pálmarsson innanborðs verða yfirburðalið í Olísdeild karla á komandi keppnistímabil, gangi eftir spá forráðamanna liðanna 12 í deildinni.

Niðurstöður hennar voru kynntar í hádeginu á Grand hóteli á kynningarfundi Íslandsmótsins í handknattleik. FH fékk 391 stig af 395 mögulegum. Aftureldingu, sem er spáð þriðja sæti, sækir FH heim í fyrstu umferð Olísdeildar á fimmtudaginn.
Val, Aftureldingu og Íslandsmeisturum ÍBV er spáð öðru til fjórða sæti en að liðin verði nokkuð á eftir FH. Haukar og Fram bítast um fimmta og sjötta sætið. Stjarnan og Selfoss tryggja sér síðustu tvö sæti í úrslitakeppninni gangi spáin eftir.
Leikjadagskrá Olísdeilda.
Fyrstu leikir Olísdeildar karla fara fram á fimmtudaginn.
Nýliðum HK og Víkings er spáð falli úr Olísdeildinni næsta vor.
Niðurstaða spárinnar:
| Sæti: | Félag: | Stig: |
| 1. | FH | 391 |
| 2. | Valur | 347 |
| 3. | Afturelding | 335 |
| 4. | ÍBV | 325 |
| 5. | Haukar | 267 |
| 6. | Fram | 254 |
| 7. | Stjarnan | 201 |
| 8. | Selfoss | 176 |
| 9. | KA | 167 |
| 10. | Grótta | 121 |
| 11. | HK | 116 |
| 12. | Víkingur | 72 |
Spáin: Selfoss fer rakleitt upp aftur
Spáin: ÍR talið hafa yfirburði í Grillinu
Spáin: Valur ber höfuð og herðar yfir önnur lið





