- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Spánn hefur ráðið nýjan landsliðsþjálfara

- Auglýsing -

Joaquín Rocamora hefur verið ráðinn nýr þjálfari kvennalandsliðs Spánar. Rocamora tekur við starfinu af Ambros Martín og hefur þegar hafið störf. Hann hefur áður þjálfað yngri landslið kvenna hjá Spáni auk þess að þjálfa kvennalið Atticgo Elche frá árinu 2016.

Undir stjórn Rocamora vann Elche Evrópubikarinn árið 2024, sem Valur vann á síðasta ári, og spænska bikarinn árið 2021 auk þess að hafna í öðru sæti spænsku efstu deildarinnar árin 2023, 2024 og 2025.


Ráðningin á Rocamora er hugsuð til framtíðar. Í tilkynningu á heimasíðu Alþjóðahandknattleikssambandsins, IHF, kemur ekki fram hversu langur samningurinn er en að einblínt verði á að ná góðum árangri á HM 2029 á heimavelli.

Tekur við af einum þekktasta þjálfara kvennaboltans

Martín hafði þjálfað spænska kvennalandsliðið frá árinu 2023 en lét nýverið af störfum til þess að taka við karlaliði Al-Duhail í Katar. Hann er einn þekktasti þjálfari heims í kvennahandboltanum og hafði fram til þess þessa þjálfað kvennalið.

Ambros Martín handknattleiksþjálfari. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Martín hefur þjálfað kvennalandslið Rússlands og Rúmeníu, ungverska stórliðið Györi og Rostov-Don í Rússlandi. Síðasta félagslið sem hann þjálfaði áður en Martín tók við karlaliði Al-Duhail var Krim Ljubljana í Slóveníu á síðasta tímabili.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -