„Ég er svolítið að meðtaka þetta. Þetta var ógeðslega skemmtilegt, gaman og stressandi. Ég er ótrúlega ánægð,“ sagði Thea Imani Sturludóttir, hægri skytta Vals, í samtali við handbolta.is eftir að Valur lagði Hauka að velli, 23:19, í bikarúrslitaleik í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í dag.
Thea hefur glímt við meiðsli undanfarna mánuði og er ekki enn fyllilega heil heilsu. Hún kom hins vegar inn á í leiknum í dag, fyrst um sinn í vörnina og fékk svo að spreyta sig í sókninni. Með innkomu Theu breyttist leikur Vals til hins betra.
Haukar voru 18:14 yfir þegar hún hóf að láta til sín taka og sneri Valur taflinu við með því að skora níu mörk gegn einu síðasta korterið. Spurð hvað hafi breyst á þessum kafla sagði Thea:
„Ég veit það ekki. Við náðum að loka þessu akkúrat á réttum tíma og snúa spilinu svolítið við. Vörnin small og við náðum að koma okkur í betri færi í sókn.“
Vitað að ég myndi ekki spila allan leikinn
Aðspurð sagði Thea það hafa legið ljóst fyrir að hún myndi ekki spila allan leikinn.
„Það var alveg vitað að ég myndi aldrei spila allan leikinn en það voru ekkert neinar ákveðið margar mínútur. Það var meira svona hvernig mér liði þegar ég kæmi inn á. Ef þetta er í lagi gefum við aðeins meira í.“
Hvernig líður þér í líkamanum?
„Mér líður vel núna en það er spurning hvernig mér líður á morgun,“ sagði Thea Imani Sturludóttir í léttum dúr í samtali við handbolta.is.


