- Auglýsing -
Talant Dujshebaev, þjálfari pólska handknattleiksliðsins Vive Kielce, og leikmenn liðsins senda Hauki Þrastarsyni stuðnings- og baráttukveðjur á Facebook-síðu liðsins í morgun. Staðfest var í gær að fremra krossband í vinstra hné Hauks er slitið og verður hann af þeim sökum frá keppni fram á næsta haust.
Þjálfarinn og leikmenn Vive Kielce standa þétt á bak við Hauk sem er aðeins 19 ára gamall og kom til félagsins í sumar frá Selfossi. Á síðunni eru myndir af Dujshebaev og leikmönnum Vive Kielce, þar á meðal er Sigvaldi Björn Guðjónsson. Á myndunum halda þeir á spjöldum með númeri Hauks, #25, og hvatningarkveðjum á íslensku til handboltamannsins efnilega.
- Auglýsing -