Hornamaðurinn efnilegi hjá Aftureldingu, Stefán Magni Hjartarson, þarf að bíta í það súra epli að taka út leikbann í fyrsta leik Aftureldingar í umspili Olísdeildar karla sem fram fer eftir viku. Stefán Magni var úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ á þriðjudaginn.
Stefáni Magna varð það á að brjóta af sér viðureign Selfoss og Aftureldingar í lokaumferð Olísdeildar karla sem fram fór í Sethöllinni fyrir viku. „Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:6 a). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 1. mgr. 11. sömu reglugerðar,“ segir í fundargerð aganefndar.
Oddur heldur sínu striki
Oddur Gretarsson leikmaður Þórs varð það einnig á að brjóta af sér í viðureign Þórs og KA í lokaumferðinni. Hann slapp fyrir horn að þessu sinni vegna þess að dómarar leiksins mátu sem að brotið falli undir reglu 8:5 c). Þar með mætir Oddur með hreint borð til leiks þegar keppni hefst í Olísdeildinni í september. Þór hefur lokið keppni í deildinni á þeirri leiktíð sem nú stendur yfir.
Dómarar gerðu axarskaft
Dómarar leiks Selfoss 2 og Hauka 2 í Grill 66-deild karla viðurkenna að hafa hlaupið á sig og gert axarskaft er þeir sýndu Einari Jónssyni starfsmanni Hauka rautt spjald í viðureign áðurnefndra liða. Málið var þar með látið falla niður og Einar heldur áfram sínu starfi eins og ekkert hafi ískorist.
Aganefnd HSÍ | Úrskurður 17.03.’26



