- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Steinunn er frábær fyrirmynd alls íþróttafólks

Viktor Gísli Hallgrímsson lofar leiðtogahlutverk Steinunnar Björnsdóttur. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -



Í tilefni að alþjóðlegum baráttudegi kvenna leitaði Handknattleikssamband Evrópu, EHF, til nokkurra karlmanna í handknattleik, innti þá eftir fyrirmyndum meðal kvenfólks í handknattleik. Einn þeirra sem svaraði spurningu EHF er landsliðsmarkvörðurinn og leikmaður Wisla Plock, Viktor Gísli Hallgrímsson. Viktor Gísli nefnir hiklaust Steinunni Björnsdóttur landsliðskonu og fyrrverandi leiðbeinanda sinn hjá Fram.

Viktor Gísli Hallgrímsson landsliðsmarkvörður. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

„Hún leikur sem línumaður og varnarsérfræðingur í uppeldisfélaginu mínu Fram og með íslenska landsliðinu. Hún þjálfaði mig líka í yngri flokkum Fram um tíma og er frábær fyrirmynd fyrir allt íþróttafólk,” svaraði Viktor Gísli.

Fréttavefur RÚV sagði fyrsta frá hér á landi.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -