- Auglýsing -
Steinunn Björnsdóttir hefur leikið sinn síðasta leik með landsliðinu í handknattleik. Hún staðfesti það m.a. í samtali við Vísir í kvöld eftir að íslenska landsliðið tryggði sér þátttökurétt á heimsmeistaramótinu sem fram fer síðar á þessu ári.
„Það var að sjálfsögðu stefnan að skilja við landsliðið eftir afar góðan tíma með liðinu á þeim stað að vera á leiðinni á lokakeppni HM. Nú er því markmiði náð og ég er alsæl með það,“ segir Steinunn m.a. í samtali við Vísir.
Steinunn hefur leikið 58 landsleiki og skoraði í þeim 92 mörk. Hún kvaddi landsliðið sem fyrirliði í tveimur síðustu landsleikjum sínum auk þess að hafa verið helsti ókrýndi leiðtogi þess um árabil.
A-landslið kvenna – fréttasíða.
- Auglýsing -