- Auglýsing -

Stemning í Færeyjum – safnað fyrir útsendingu sjónvarps

- Auglýsing -


Það verður hátíðarstemning í Færeyjum á morgun þegar hetjurnar í 21 árs landsliði þjóðarinnar leika við Svía um bronsverðlaunin á heimsmeistaramótinu í Póllandi. Risaskjáir verða settir upp víða um eyjarnar svo fólk geti komið saman og fylgst með leiknum. Eins verður þjóðarhöllin, Við Tjarnir, opnuð. Þangað getur fólk komið meðan húsrúm leyfir og fylgst með leiknum af breiðtjaldi sem komið hefur verið upp.

Safnað fyrir útsendingu

Lengi vel leit út fyrir að samningar um kaup á útsendingarétti á leiknum næðust hjá Kringvarpinu, ríkissjónvarpi Færeyjar. Uppsett verð fyrir útsendingaréttinn var hátt. Samkvæmt nýjustu fregnum standa vonir til að leikurinn verði sendur út eftir að fyrirtæki og sveitarfélög slógu saman fyrir kostnaðinum. Enn á eftir að greiða úr tæknilegum atriðum.

Þúsundir komu saman í Þórshöfn í gærkvöld og fylgdust með undanúrslitaleik Færeyinga og Portúgala. Magnþrungnum tvíframlengdum leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en eftir 80 mínútna viðureign. Færeyingar töpuðu með einu marki, 38:37.

Færeyingar eiga þess kost að vinna í fyrsta sinn til verðlauna á stórmóti í handknattleik. Aldrei hefur landslið þjóðarinnar náð svo langt á heimsmeistaramóti í boltaíþrótt.

Viðureign Færeyinga og Svía hefst klukkan 15 á morgun og verður leiknum streymt á handbolti.is.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -