U19 ára landslið kvenna í handknattleik fylgdi í fótspor 17 ára landsliðsins og vann færeyska landsliðið öðru sinni á jafnmörgum dögum í vináttulandsleik í Færeyjum í gær, 23:21. Á laugardaginn vannst eins marks sigur, 26:25.
Íslenska liðið átti lengi vel á brattan að sækja í viðureigninni í gær sem fór fram við Streyminn. Færeyingar voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 10:8.
Eftir því sem fram kemur á Facebook-síðu færeyska handknattleikssambandsins var íslenska liðið betra síðustu 10 mínútur leiksins.
Mörk Íslands: Arna Karítas Eiríksdóttir 4, Ásrún Inga Arnarsdóttir 4, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 3, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 3, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 3, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 2, Ágústa Rún Jónasdóttir 1, Guðrún Hekla Traustadóttir 1, Gyða Kristín Ásgeirsdóttir 1, Hulda Hrönn Bragadóttir 1.
Níu marka sigur hjá U17 ára landsliðinu í dag
17 og 19 ára landsliðin unnu í Færeyjum