- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Stiven markahæstur í góðum útisigri

- Auglýsing -

Stiven Tobar Valencia var markahæstur þegar lið hans SL Benfica heimsótti ABC Braga og vann sterkan sigur, 35:30, í portúgölsku úrvalsdeildinni í dag.

Stiven skoraði sjö mörk en það gerði einn liðsfélagi hans einnig og sömuleiðis tveir í liði Braga.


Benfica er í öðru sæti deildarinnar með 55 stig eftir 21 leik en Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar hans í Sporting Lissabon er á toppnum með 57 stig og á auk þess tvo leiki til góða.

Porto er þá í þriðja sæti með 51 stig og á einnig tvo leiki til góða á Benfica. Porto, sem Þorsteinn Leó Gunnarsson leikur með, átti að spila gegn Marítimo í dag en leiknum var frestað.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -