Stiven Tobar Valencia og samherjar í Benfica komust upp í annað sæti portúgölsku 1. deildarinnar í handknattleik með stórsigri á smáliðinu Arsenal C. Devesa á útivelli, 43:23, í gær. Benfica er nú stigi á undan Porto sem á reyndar leik til góða á Lissbon-liðið.
Stiven Tobar skoraði eitt mark hjá Arsenal-liðinu en margir helstu leikmenn Benfica voru sparaðir eins og kostur var fyrir átökin gegn sænska liðinu IFK Kristianstad í Evrópudeildinni næsta þriðjudag. Leikurinn er afar mikilvægur fyrir bæði lið sem keppast um sæti í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar.
Þorsteinn sækir í sig veðrið
Þorsteinn Leó Gunnarsson er jafnt og þétt að sækja í sig veðrið eftir erfið meiðsli. Hann skoraði fjórum sinnum úr sex skotum í sigurleik Porto þegar lið Águas Santas var sótt heim í gær. Lokatölur 28:22 fyrir Porto sem, eins og áður segir, er í þriðja sæti deildarinnar.
Porto sækir heim spænska liðið Granollers í Evrópudeildinni á þriðjudagskvöld.
Orri Freyr Þorkelsson og félagar í meistaraliðinu Sporting Lissabon mæta Avanca á útivelli í dag. Sporting er sem fyrr efst og taplaust í portúgölsku deildinni.
Staðan:




