- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Stjarnan ætlar að herja á Evrópu næsta vetur

Leikmenn Stjörnunnar ætla að taka þátt í Evrópukeppni á næstu leiktíð. Ljósmynd/J.L.Long
- Auglýsing -


Stjarnan hefur ákveðið að senda karlalið sitt til þátttöku í Evrópukeppni á næsta keppnistímabili í fyrsta sinn í 18 ár. Sigurjón Hafþórsson formaður handknattleiksdeildar Stjörnunnar staðfesti þessa ætlan við handbolta.is í dag. Sem silfurlið Poweradebikarsins á Stjarnan rétt á þátttöku í Evrópudeildinni, þeirri sömu og FH og Valur voru síðast með í fyrir áramót.

Ekki hefur fengist staðfest um þátttöku annarra íslenskra liða í Evrópukeppninni á næsta keppnistímabili.

Skýrist í byrjun júlí

Það skýrist væntanlega í lok júní eða byrjun júlí þegar þátttökufrestur verður liðinn og EHF hefur farið yfir allar skráningar hvort Stjarnan tekur þátt í forkeppni Evrópudeildarinnar eða kemst beint í riðlakeppnina.

Þegar byrjað að safna

Sigurjón sagði það vera spennandi verkefni fyrir Stjörnuna að hella sér út í Evrópuslaginn. Leikmenn ætli að standa straum af kostnaði við þátttöku. Eru þeir þegar byrjaðir í fjáröflun.

Ætla ekki að finna upp hjólið

Sigurjón sagði jafnframt að forráðamenn Stjörnunnar ætluðu sér ekki að finna upp hjólið þegar þegar kemur að þátttökunni. Þvert á móti ætluðu þeir að leita í smiðju félaga sem hafa tekið þátt í Evrópukeppninni á síðustu árum, þá ekki síst til Vals. Þar á bæ er fyrir hendi viðamikil reynsla af þátttöku bæði karla- og kvennaliða félagsins í Evrópukeppni á síðustu árum, jafnt í Evrópudeildinni og í Evrópubikarkeppninni.

Karlalið Stjörnunnar var fyrst með í Evrópukeppni félagsliða upp úr miðjum níunda áratug síðustu aldar. Síðast tók lið félagsins þátt í Evrópukeppni bikarhafa leiktíðina 2007/2008 en féll naumlega út í fyrstu umferð fyrir króatíska liðinu Madvescak Zagreb, 58:57, í tveimur leikjum. Króatíska liðið skoraði úrslitamarkið fjórum sekúndum fyrir leikslok í Ásgarði í síðari viðureigninni.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -