- Auglýsing -
- Auglýsing -

Stjarnan hefur samið við japanskan markvörð

Aki Ueshima, markvörður Stjörnunnar. Ljósmynd/Facebookmynd Stjörnunnar
- Auglýsing -


Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur samið við japanskan markvörð, Aki Ueshima. Á hún að leika með kvennaliði félagsins í Olísdeildinni.

Samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu er Ueshima 23 ára gömul. Auk þess að leika handknattleik í heimalandinu hefur Ueshima leikið í Hollandi. Hún á landsleiki með 16 og 20 ára landsliðum Japans auk þess að vera í A-landsliði Japans sem tók þátt í forkeppni Ólympíuleikanna í sumar.

„Það er mikil ánægja með komu Aki til Stjörnunnar og hlökkum við mikið til þess að sjá hana á milli stanganna í vetur,“ segir í tilkynningu Stjörnunnar.

Stjarnan tekur á móti ÍBV í síðasta leik 5. umferð Olísdeildar kvenna í Hekluhöllinnni á morgun, laugardag. Flautað verður til leiks klukkan 16.30. Ueshima hefur fengið leikheimild og verður gjaldgeng með Stjörnunni.

Fréttin var uppfærð þegar Ueshima fékk leikheimild eftir hádegið.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -