- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Stjarnan knúði fram oddaleik á heimavelli á laugardag

- Auglýsing -

Stjarnan knúði í kvöld fram oddaleik í undanúrslitarimmu sinni við Fjölni í umspili Olísdeildar karla. Stjörnumenn unnu með sex marka mun, 32:26, í Fjölnishöllinni í kvöld eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik. Oddaleikur liðanna fer fram í Hekluhöllinni í Garðabæ á laugardaginn klukkan 16.30, eins og leikjadagskráin lítur út um þessar mundir.


Eftir eins marks sigur Fjölnis í fyrstu viðureigninni voru Stjörnumenn tilneyddir að leika til sigurs í Fjölnishöllinni í kvöld. Það lánaðist þeim þótt Fjölnismönnum tækist að halda gestum sínum við efni í 45 til 50 mínútur.

Stjarnan skoraði fyrstu fimm af sex fyrstu mörkunum en Fjölnir skoraði ekki annað mark sitt fyrr en eftir tæpar 12 mínútur. Það reyndist heimamönnum dýrt að lenda fjórum mörkum undir strax í upphafi. Segja má að þeim hafi aldrei lánast að vinna muninn upp þótt Stjarnan hafi ekki sýnt neinn glæsileik.

Hafi verið einhver von hjá Fjölni að vinna upp muninn, sem var lengst af þrjú til fimm mörk, þá rann allt út í sandinn hjá liðinu á síðustu 15 mínútunum. Hvert axarskaftið rak annað auk þess sem Sigurður Dan Óskarsson markvörður Stjörnunnar reyndist óþægur ljár í þúfu.

Annað kvöld mætast Hörður og Grótta öðru sinni í rimmu undanúrslita á Ísafirði klukkan 19.


Mörk Fjölnis: Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson 6, Óli Fannar Pedersen 5, Ari Magnússon 4, Kristján Ingi Kjartansson 3, Alex Máni Oddnýjarson 2, Björgvin Páll Rúnarsson 2, Victor Máni Matthíasson 2, Aron Breki Oddnýjarson 1, Brynjar Óli Kristjánsson 1.
Varin skot: Bergur Bjartmarsson 6, Viktor Alex Ragnarsson 1.

Mörk Stjörnunnar: Ísak Logi Einarsson 8, Jóel Bernburg 7, Benedikt Marinó Herdísarson 6, Matthías Dagur Þorsteinsson 4, Hans Jörgen Ólafsson 3, Patrekur Þór Guðmundsson Öfjörð 2, Jón Ásgeir Eyjólfsson 1, Tandri Már Konráðsson 1.
Varin skot: Sigurður Dan Óskarsson 15.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -