- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Stórkostlegur sigur á Svartfellingum

- Auglýsing -

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna vann Svartfjallaland, 28:27, í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik á Ásvöllum í kvöld. Þar með er íslenska liðið komið á blað í keppninni. Þetta var um leið fyrsta tap Svartfellinga í undankeppninni sem höfðu lagt Færeyinga og Portúgal í haust. Sigurinn getur reynst stórt skref í átt að lokakeppni EM. Frammistaða íslenska liðsins var hreint frábær, ekki síst í vörninni þar sem tókst að slá flest vopnu úr höndum Svartfellinga sem varði til þess að þeir voru að elta allan síðari hálfleikinn.


Enn athyglisverðari er frammistaðan og sigurinn í ljósi þess að nokkrir reyndir og öflugir leikmenn voru ekki með og liðið algjörlega án örvhentrar skyttu eða gegnumbrots konu. Lovísa Thompson lék lengst af í hægri skyttunni og var frábær. Tók frumkvæðið strax og lét Svartfellinga svo sannarlega svitna.

Staðan var jöfn í hálfleik, 13:13. Fyrri hálfleikur var jafn og skemmtilegur. Þegar á leið náði Ísland frumkvæðinu. Varnarleikurinn var afar vel útfærður. Svartfellingar léku sig í ógönugur hvað eftir annað.

Sigurvalinn á Ásvöllum hjá íslenska landsliðinu eftir frábæran leik og glæsilegan sigur. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Í síðari hálfleik batnaði sóknarleikur íslenska liðsins til muna þegar opnin færi nýttust betur en áður. Elín Klara Þorkelsdóttir var stórkostkostleg. Hún lék varnarmenn Svartfellinga grátt hvað eftir annað ásamt Söndru Erlingsdóttur og Elínu Rósu Magnúsdóttur. Á heildina var sóknarleikurinn áræðin og hraður og tapaði boltar í lágmarki.

Elín Klara Þorkelsdóttir og Elísa Elíasdóttir fagna í sigurleiknum á Svartfellingum. Báðar fóru á kostum. Elín Klara skoraði 12 mörk og Elísa fór hamförum í vörninni. Ljósmynd / Hafliði Breiðfjörð


Varnarleikurinn var mjög vel útfærður og markvarslan var var mjög góð í síðari hálfleik meðan Hafdísar Renötudóttur naut við. Hún fékk boltann í andlitið þegar sex mínútur voru eftir og kom ekkert meira við sögu. Vonandi hefur höggið ekki áhrif á þátttöku hennar í síðari leiknum ytra á sunnudaginn. Eins meiddist Kartrín Tinna Jensdóttir. Hún fékk höfuðhögg snemma leiks og kom ekkert meira við sögu.


Mörk Íslands: Elín Klara Þorkelsdóttir 12/3, Sandra Erlingsdóttir 7/7, Dana Björg Guðmundsdóttir 3, Lovísa Thompson 2, Elín Rósa Magnúsdóttir 2, Elísa Elíasdóttir 1, Katrín Anna Ásmundsdóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 10/1, 32,3% – Sara Sif Helgadóttir 1/1, 14,3%.

Mörk Svartfjallalands: Djurdjina Jaukovic 12, Nina Bulatovic 3, Ivana Godec 2, Dijana Trivic 2, Tatjana Brnovic 2, Itana Grbic 2, Anastasija Marsenic 1, Matea Pletikosic 1, Nikolina Markovic 1, Mina Novovic 1.
Varin skot: Armelle Attingré 13 42% – Marija Marsenic 3.

Handbolti.is fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -