Elín Jóna Þorsteinsdóttir átti afbragðsleik í marki nýliða Vendsyssel þegar liðið tapaði fyrir bikarmeisturum Herning-Ikast í fimmtu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld, 20:18. Leikið var á heimavelli Herning-Ikast. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 12:10, heimaliðinu í hag.
Elín Jóna varði 14 skot í marki Vendsyssel og var með 41,1% hlutfallsmarkvörslu. Steinunn Hansdóttir skoraði eitt mark og nýtti þar með vel eina skot sitt á markið í leiknum á móti bikarmeisturunum.
Vendsyssel er með eitt stig í neðri hluta deildarinnar að loknum fimm leikjum.
- Auglýsing -