Stórleikur Viktors Gísla Hallgrímssonar í kvöld dugði Wisla Plock ekki til fyrsta sigursins í Meistaradeildar Evrópu á leiktíðinni. Liðið tapaði með eins marks mun á heimavelli fyrir franska meistaraliðinu PSG, 24:23, eftir jafna stöðu í hálfleik. Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leikinn.
Viktor Gísli varði 13 skot, 39,3%, í leiknum. Ekki síst varði hann vel í fyrri hálfleik. Félagar hans í sóknarleiknum náðu sér lítt á strik og réði það miklu að sænski landsliðsmarkvörðurinn Andreas Palicka var ekkert síður vel með á nótunum en Viktor Gísli.
Palicka tryggði PSG bæði stigin þegar hann varði vítakast þegar leiktíminn var úti.
🧱 Andreas Palickaaaaaaaaa 😀 pic.twitter.com/mQI1JGTdKe
— HandNews (@HandNewsfr) September 26, 2024
Wisla Plock rekur lestina í A-riðli ásamt Pelister og Fredericia HK.
Michal Daszek skoraði 8 mörk fyrir Wisla og Zoltan Szita þrjú. Pólski línumaðurinn Kamil Syprzak var markahæstur hjá PSG með sjö mörk. Hollendingurinn Luc Steins var þar á eftir með sex mörk og sjö stoðsendingar.
Staðan:
Fyrr í kvöld voru þrír leikir í Meistaradeildinni: