SC Magdeburg náði aftur fimm stiga forskoti á toppi þýsku 1. deildarinnar í handknattleik þegar liðið vann GWD Minden með 17 marka mun í GETEC Arena í Magdeburg, 38:21. Ómar Ingi Magnússon var markahæstur leikmanna Magdeburg með átta mörk ásamt Magnus Saugstrup. Ómar skoraði eitt marka sinna úr vítakasti. Hann átti auk þess þrjár stoðsendingar.
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði eitt mark og gaf fjórar stoðsendingar.
Staðan var 21:11 þegar fyrri hálfleik lauk.
Magdeburg hefur 40 stig í efsta sæti að loknum 22 leikjum. Flensburg er með 35 stig, Füchse Berlin og THW Kiel eru með 34 stig hvort og Lemgo er með 32 stig.
Áfram tapar Melsungen í Hamborg
Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði eitt mark þegar HSV Hamburg lagði MT Melsungen, 25:23, í Hamborg í dag. Um leið batt Hamborgarliðið enda á fimm leikja taphrinu. Það sem meira er þá var þetta í fimmtánda sinn í röð sem Melsungen tapar fyrir HSV Hamburg á heimavelli Hamborgarliðsins.
HSV Hamburg siglir lygnan sjó í 10. sæti deildarinnar með 19 stig. Melsungen er í áttunda sæti með sjö stigum meira.
Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt mark fyrir Melsungen en Reynir Þór Stefánsson skoraði ekki að þessu sinni.
Lettinn Dainis Krištopāns var markahæstur hjá Melsungen með sjö mörk en Daninn Nicolaj Jørgensen skoraði átta sinnum fyrir HSV Hamburg.
Stuttgart lagði Hannover-Burgdorf, 35:34, heimavelli. Var þetta fyrsta tap Hannover-Buergdorf eftir að Juan Carlos Pastor tók við þjálfun liðsins í janúar. Heiðmar Felixson er hans aðstoðarmaður.
Staðan:




