- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Stuttgart var Füchse engin hindrun – Melsungen vann naumlega

Arnar Freyr Arnarsson og Elvar Örn Jónsson leikmenn MT Melsungen. Mynd/MT Melsungen
- Auglýsing -


Füchse Berlin endurheimti efsta sæti þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í dag eftir að Magdeburg hafði um stund tyllt sér á toppinn með sigri á Lemgo á útivelli, 31:29. Leikmenn Stuttgart voru engin hindrun á vegi Berlínarliðsins sem vann með 15 marka mun í Stuttgart, 35:20.

MT Melsungen, með Arnar Freyr Arnarsson og Elvar Örn Jónsson innanborðs situr áfram í þriðja sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Füchse Berlin þegar tvær umferðir eru eftir. Lettinn Dainis Kristopans tryggði Melsungen nauman sigur á Eisenach á heimavelli, 26:25.

Elvar Örn skoraði tvö mörk og gaf þrjár stoðsendingar. Arnar Freyr skoraði eitt mark. Markahæsti leikmaður deildarinnar, Marko Grgic, skoraði sjö sinnum fyrir Eisenach.


Heiðmar Felixson og liðsmenn í Hannover-Burgdorf töpuðu fyrir Flensburg í hörkuleik upp við dönsku landamærin, 34:32.

Viktor Petersen Norberg skoraði ekki mark fyrir HSG Wetzlar sem gerði jafntefli á heimavelli við Rhein-Neckar Löwen, 30:30. Eftir tvo tapleiki í röð eftir að Momir Ilic tók við þjálfun Wetzlar var þetta fyrsta stigið sem liðið krækir í um langt skeið.

Síðdegis leika Viggó Kristjánsson og liðsfélagar í HC Erlangen afar mikilvægan leik við Bietigheim í fallbaráttunni. Takist HC Erlangen ekki að vinna leikinn verður liðið komið með a.m.k. annan fótinn í deildina fyrir neðan.


Staðan í þýsku 1. deildinni:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -