Handknattleiksdómararnir Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson dæma í Palau Blaugrana í Barcelona næsta miðvikudag viðureign Barcelona og HC Eurofarm Pelister í síðustu umferð B-riðils Meistaradeildar Evrópu.
Leikurinn á miðvikudaginn verður önnur viðureignin á skömmum tíma sem þeir félagar dæma í Meistaradeild karla. Þeir dæmdu viðureign Aalborg Håndbold og Kolstad í Álaborg í síðasta mánuði.
Óhætt er að segja að íslenskir dómarar séu eftirsóttir þessa daga. Í gærkvöld dæmdu Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson leik Pick Szeged og GOG í Ungverjalandi.
Hlynur til Danmerkur
Þar með er ekki öll sagan sögð vegna þess að Hlynur Leifsson fyrrverandi milliríkjadómari verður eftirlitsmaður á leik GOG og HC Zagreb í Arena Svendborg á miðvikudag. Leikurinn er einnig lokaumferð B-riðils Meistaradeildar karla í handknattleik.



