- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Svíar mæta með sitt sterkasta lið til Íslands og eru sagðir í hefndarhug

- Auglýsing -

Michael Apelgren hefur valið sænska landsliðshópinn sem mætir íslenska karlalandsliðinu í tveimur vináttuleikjum sem fram fara hér á landi 19. og 21. mars. Enn þá hefur handbolti.is ekki fengið staðfest hvar leikirnir fara fram en sænska handknattleikssambandið segir í tilkynningu sinni að leikirnir fari fram í Laugardalshöll.


Einn nýliði er í sænska landsliðinu, Marko Roganovic markvörður. Hann tekur sæti Andreas Palicka sem hætti með landsliðinu eftir EM í síðasta mánuði. Marko á bróður í landsliðinu, Nikola Roganovic. Að öðru leyti er sænska landsliðið skipað sömu mönnum og tóku þátt í EM hvar það hafnaði í 6. sæti.

Eric Johansson sendir boltann á línumanninn Oscar Bergendahl í viðureign Íslands og Svíþjóðar á EM. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Eru hefndarhug

Svíar koma til Íslands í hefndarhug eftir átta marka tap, 35:27, í Malmö Arena 25. janúar.

„Við þurfum svo sannarlega að hefna ófaranna. Leikurinn gegn Íslandi á EM er sá sem við erum vonsviknastir með,“ hefur Aftonbladet eftir Apelgren landsliðsþjálfara.

Féll allur ketill í eld

„Okkur féll allur ketill í eld í leiknum við Íslendinga sem varð til þess að menn voru óöruggir í næsta leik á eftir, gegn Ungverjum,“ segir Apelgren enn fremur en jafntefli Svía og Ungverja, 32:32, opnaði íslenska landsliðinu leið í undanúrslit á Evrópumótinu, til sælla minninga.


Markverðir:
Mikael Appelgren, One Veszprém, (111/2).
Fabian Norsten, Aalborg Håndbold, (19/0).
Marko Roganovic, Bjerringbro-Silkeborg Håndbold (0/0).
Vinstri hornamenn:
Hampus Wanne, Høj Håndbold, (125/494).
Felix Montebovi, HK Malmö, (10/9).
Línumenn:
Max Darj, Füchse Berlin, (142/174).
Oscar Bergendahl, SC Magdeburg, (75/119).
Felix Möller, Aalborg Håndbold, (45/77).
Hægri hornamenn:
Daniel Pettersson, SC Magdeburg, (109/240).
Sebastian Karlsson, Paris Saint-Germain, (46/127).
Vinstri skyttur:
Jonathan Carlsbogård, FC Barcelona, (100/190).
Eric Johansson, THW Kiel, (62/183).
Nikola Roganovic, HK Malmö, (14/41).
Miðjumenn:
Jim Gottfridsson, Pick Szeged, (186/550).
Felix Claar, SC Magdeburg, (94/280).
Axel Månsson, IFK Kristianstad, (7/4).
Hægri skyttur:
Albin Lagergren, SC Magdeburg, (140/433).
Lukas Sandell, Rhein-Neckar Löwen, (88/245).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -