- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

„Svolítið búnir að lenda í þessu í allan vetur“

- Auglýsing -

„Tilfinningin er frábær,“ sagði Alexander Ásgrímsson, ein af hetjum ÍR í æsilegum 32:31 sigri á KA í undanúrslitum Powerade bikarsins í Kuehne+Nagel höllinni í kvöld, í samtali við handbolta.is eftir leikinn. Alexander varði tíu skot í marki ÍR, mörg hver á mikilvægum augnablikum í leiknum.

ÍR var með yfirhöndina stærstan hluta leiksins, var gjarnan þremur til fjórum mörkum yfir, en glutraði niður forystunni þegar leið á hann og komst KA auk þess einu marki yfir.


„Við erum svolítið búnir að vera að lenda í þessu í allan vetur, þar sem við komumst yfir og klúðrum þessu í lokin. Það er bara geðveikt að ná þessu núna, sérstaklega í undanúrslitum bikarsins,“ sagði Alexander.

Seint í leiknum gerði hann sér lítið fyrir og varði þrisvar frá Georgíumanninum öfluga, Giorgi Dikhaminjia, í sömu sókninni.

„Ég er mjög sáttur við það. Þeir voru að fá svolítið góð færi þannig að það er geðveikt að verja þetta,“ sagði hann.

Getur orðið leikur með sömu stemningu

ÍR er á botni Olísdeildarinnar en leikur nú til úrslita í bikarkeppninni, gegn Haukum á laugardag. Alexander sagði það vitanlega ánægjulegt.

„Þetta er bara geðveikt. Við vorum ekki að stefna að því að vera í neðsta sæti en þetta er frábært.“


Kvaðst hann spenntur fyrir úrslitaleiknum gegn Haukum á laugardag.

„Það verður náttúrlega erfitt en ef við náum þessari stemningu aftur getur þetta orðið leikur,“ sagði Alexander Ásgrímsson í samtali við handbolta.is

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -