Thomas Arnoldsen er nú einn fjölda danskra landsliðsmanna sem hafa unnið Evrópumeistaratitilinn, heimsmeistaratitilinn og ólympíumeistaratitilinn með liðinu, hvern á eftir öðrum. Arnoldsen sker sig hins vegar úr.
Hann hefur nefnilega ekki enn tapað leik með danska A-landsliðinu í 32 leikjum. Þó það sé sjaldgæft kemur fyrir að Danmörk tapi leik, það gerði liðið til að mynda gegn Portúgal á nýafstöðnu Evrópumóti.
Jafnaði sig á sköflungsbroti og kemur til móts við heimsmeistarana
Arnoldsen var hins vegar ekki kominn í hópinn þá. Hann jafnaði sig á sköflungsbroti á rúmum tveimur mánuðum og kom því nokkuð óvænt til liðs við danska hópinn fyrir úrslitahelgina.
„Nei, ég hef nú gert jafntefli við Noreg,“ sagði Arnoldsen við hbold.dk og glotti. „Það er svolítið klikkað að hugsa til þess,“ bætti hann við og vísaði til ótrúlegs árangurs síns.
Réttilega benti Arnoldsen á jafntefli gegn Noregi, sem er eini landsleikurinn sem hann hefur ekki unnið. Í leikjunum 32 hefur nefnilega 31 unnist og einn endað með jafntefli.



