-Auglýsing-

„Synd að geta ekki spilað í stærri höll“

- Auglýsing -

„Mér fannst við gera margt mjög vel og það var líka margt sem mátti betur fara,“ sagði Elliði Snær Viðarsson, fyrirliði Íslands, í samtali við handbolta.is eftir 33:35 tap fyrir Svíþjóð í vináttulandsleik á Hlíðarenda í kvöld.

„Mér fannst við ekki alveg ná upp varnarleiknum en megnið af leiknum fannst mér við spila mjög vel sóknarlega. Við vorum líka að prófa marga nýja hluti og vorum ekki beint að hjálpa markmanninum með því sem við vorum að gera.

Tveggja marka tap fyrir Svíum á Hlíðarenda


Það gerði okkur svolítið erfitt fyrir en þetta lofar góðu. Heilt yfir fannst mér þetta góður leikur. Það er leiðinlegt að tapa, við vildum klárlega vinna þennan leik og ætluðum okkur það. Mér fannst við gera vel í að koma til baka og gefa okkur allavega möguleika á að vinna.

Svo voru smáatriði eins og einhver langskot sem hefðu vanalega dottið en duttu ekki. Hann var góður í markinu í seinni hálfleik og það skóp sigurinn fyrir þá,“ sagði Elliði Snær er hann var beðinn um að gera upp leikinn.

Frábært að fá þessa leiki hér

Ísland og Svíþjóð mætast aftur í vináttulandsleik strax á laugardaginn, þá í Kaplakrika og er hefnd í huga Eyjamannsins, sem telur það gott að fá að spila svo fljótlega aftur við Svía.

„Já, klárlega og það er náttúrlega frábært að koma heim og spila hérna. Það er synd að það komist ekki fleiri hingað, að við getum ekki spilað í stærri höll.

En það er gjörsamlega frábært að koma heim og fá þessa leiki hér. Ég er bara þakklátur fyrir það að geta tekið þetta verkefni hér,“ sagði hann.

Ótrúlega mikill heiður

Elliði Snær kvaðst hafa notið þess mjög að vera fyrirliði íslenska liðsins í fjarveru landsliðsfyrirliðans Ómars Inga Magnússonar.

„Það er alltaf ótrúlega mikill heiður. Það er ekkert minni heiður á stórmóti en það er rosalega gaman að fá að gera það fyrir framan okkar eigin áhorfendur og nánast bara Íslendinga.

Ég veit ekki hvort það hafi verið einhverjir 2-3 Svíar hérna. En það er ótrúlega mikill heiður og gaman að fá að leiða liðið inn á völlinn,“ sagði Elliði Snær Viðarsson í samtali við handbolta.is.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -