Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði ekki fyrir Kadetten Schaffhausen þegar meistararnir unnu BSV Bern, 31:27, í fyrsta leik svissnesku A-deildarinnar í handknattleik í gærkvöld. Óðinn Þór átti þrjú markskot sem öll geiguðu. Leikið var í Bern.
Dagur Gautason skoraði fjögur mörk...
Spænski handknattleiksmaðurinn Valero Rivera tilkynnti í gær að hann ætlaði sér að hætta keppni í handknattleik næsta vor eftir 23 ár sem atvinnumaður í íþróttinni. Rivera hefur lengst af leikið með franska liðinu Nantes eða alls í 14 ár...
Reynir Stefánsson formaður dómaranefndar HSÍ verður eftirlitsmaður á síðari viðureign IK Sävehof og Malmö í forkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik sem fram fer í Partille 6. september. Eins og handbolti.is sagði frá á dögunum dæma Svavar Ólafur Pétursson og...
Blær Hinriksson skoraði fjögur mörk í síðasta æfingaleik þýska liðsins DHfK Leipzig í gær gegn tékkneska liðinu HCB Karviná. Leipzig vann leikinn, 36:30, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik. Keppni í þýsku 1. deildinni hefst á...
Haukur Þrastarson skoraði tvö mörk þegar Rhein-Neckar Löwen lagði svissneska liðið HC Kriens-Luzern, 37:29, í æfingaleik í gær.
Landsliðskonurnar Andrea Jacobsen, Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir hefja keppnistímabilið í Þýskalandi formlega í dag þegar lið þeirra Blomberg-Lippe mætir...
Þýska handknattleiksliðið THW Kiel staðfesti í gær að Slóveninn Domen Makuc gangi til liðs við félagið næsta sumar. Makuc hefur verið leikmaður Barcelona frá 2020. Samningur Makuc við THW Kiel er til fjögurra ára frá árinu 2026.
Þýski dagblaðið Sport...
Þýska handknattleiksliðið HC Erlangen, sem Andri Már Rúnarsson og Viggó Kristjánsson leika með, vann austurríska liðið Bregenz, 35:26, í gær í Austurríki. Harðsótt hefur reynst að afla upplýsinga um hvort Andri Már og Viggó skoruðu í leiknum. Ljóst er...
Johanna Bundsen, markvörður sænska landsliðsins, hefur samið við frönsku meistarana Metz. Hún var hjá HB Ludwigsburg. Bundsen var á dögunum orðuð við þrjú rúmensk lið en þegar á hólminn var komið varð Frakkland ofan hjá Bundsen sem valin var...
Evrópumeistarar SC Magdeburg vann hið árlega æfingamót, Wartburg-Cup í Eisenach, í gær. Magdeburg hafði betur gegn danska liðinu Skanderborg AGF, 36:32, í þriðju og síðustu umferð í gær. Ómar Ingi Magnússon skoraði átta mörk og var markahæstur leikmanna Magdeburg....
Orri Freyr Þorkelsson var markahæstur með níu mörk þegar lið hans Sporting Lissabon lagði Dunkerque, 39:27, á æfingamóti í borginni Brest í Bretóníu í fyrrakvöld. Ekki hafa rekið á fjörur handbolta.is upplýsingar um hverjar voru lyktir viðureignar Sporting og...