- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Tandri Már og Sverrir taka nú þegar við Stjörnunni

- Auglýsing -

Tandri Már Konráðsson og Sverrir Eyjólfsson taka nú þegar við þjálfun og stjórn karlaliðs Stjörnunnar í handknattleik en til stóð að þeir tækju við stjórnvölunum í sumar. Hrannar Guðmundsson hefur þar með látið af störfum eftir því sem fram kemur í tilkynningu handknattleiksdeildar Stjörnunnar síðdegis í dag.


Stjarnan stígur á næstunni krappan dans í umspili Olísdeildar karla og mætir Fjölni í undanúrslitum umspilsins. Fyrsta viðureigninin verður í Hekluhöllinni á föstudagskvöld. Ekki er á vísan róið í umspilinu eins og Gróttumenn fengu að kynnast fyrir ári.

Hrannar varð þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í byrjun október 2023, tók þá við af Patreki Jóhannssyni. Fyrir ári lék Stjarnan til úrslita í bikarkeppni karla en tapaði fyrir Fram.

Hrannar Guðmundssson fráfarandi þjálfari karlaliðs Stjörnunnar. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Róðurinn var þungur hjá Hrannari og Stjörnumönnum á síðari hluta keppnistímabils Olísdeildar á yfirstandandi leiktíð. Hafnaði liðið í 11. og næst neðsta sæti og verður þar með að taka þátt í umspili Olísdeildar til þess að eiga möguleika á að halda sæti sínu í deildinni.

Tveir uppaldir taka við Stjörnunni

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -