- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Tap í oddaleik og fjórða sæti varð niðurstaðan

Arnór Atlason þjálfari TTH Holstebro og aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Arnór Atlason og liðsmenn hans í danska úrvalsdeildarliðinu TTH Holstebro töpuðu fyrir GOG, 38:30, í oddaleik um bronsverðlaunin í úrslitakeppninni í gærkvöld. Leikið var á heimavelli GOG sem vann tvo síðustu leiki liðanna. Holstebro vann upphafsleikinn í Svendborg Arena.


Eftir fyrri hálfleikinn var Holstebro með eins marks forskot, 18:17, í leiknum í gær. Heimamenn tóku hinsvegar öll völd í leiknum í síðari hálfleik með öflugum varnarleik.

Holstebro hafnaði í 7. sæti í úrvalsdeildinni en fór á kostum í úrslitakeppninni og náði sæti í undanúrslitum í fyrsta sinn svo árum skiptir. Ljóst er að Arnór hefur gjörbylt leik liðsins á tveimur árum eftir að hann tók við. Það var viðurkennt þegar Arnór var kjörinn þjálfari ársins í úrvalsdeild karla í Danmörku í kjöri sem þjálfarar tóku þátt í.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -