Spænski þjálfarinn Talant Dujshebaev verður tilkynntur sem nýr þjálfari franska karlalandsliðsins í dag ef marka má þýska miðilinn Handball World. Miðillinn kveðst hafa heimildir fyrir því að tilkynnt verði um brottför núverandi þjálfara Frakklands, Guillaume Gille, í dag og að Dujshebaev taki við starfinu af Gille.
Pólskir miðlar greindu fyrst frá því að Dujshebaev taki við Frakklandi en hann hefur þjálfað karlalið Industria Kielce í Póllandi undanfarin tólf ár. Samningur Dujshebaev við Kielce rennur út sumarið 2027 og er reiknað með því að hann sinni báðum störfum næsta eina og hálfa árið.
Fari svo að Dujshebaev taki við sem þjálfari Frakklands verður fyrsta verkefni hans með liðinu vináttuleikur gegn Spáni þann 19. mars, þar sem tveir synir hans Alex og Daniel, verða að öllum líkindum í eldlínunni með spænska liðinu. Bræðurnir hafa leikið undir stjórn föður síns hjá Kielce allt frá sumrinu 2017.
Ekki er vitað hve langan samning Talant mun skrifa undir hjá franska handknattleikssambandinu en greinir Handball World frá því að það verði allavega fram yfir Ólympíuleikana í Los Angeles 2028 og jafnvel til og með HM 2029 á heimavelli Frakka.


