Þýska meistaraliðið Füchse Berlin leikur í fyrsta sinn í sögu sinni til úrslita í Meistaradeild Evrópu á morgun. Berlínarliðið fór illa með franska liðið Nantes í undanúrslitaleik í Lanxess Arena í Köln í dag, 34:24, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, 18:13.
Vika verður liðin á morgun síðan Berlínarliðið varð þýskur meistari í fyrsta sinn.
Síðari í dag skýrist hvort Füchse mætir Barcelona eða Magdeburg í úrslitaleiknum. Síðari undanúrslitaleikurinn hefst klukkan 16.
Þrátt fyrir að missa sinn besta mann og stærstu stjörnu, Mathias Gidsel, út með rautt spjald eftir 8 mínútur og 20 sekúndur, þá sló það leikmenn Füchse ekki út af laginu. Þeir sýndu allar sínar bestu hliðar með serbneska landsliðsmarkvörðinn Dejan Milosavljev í þrumustuði frá upphafi til enda auk þess sem varnarleikurinn var stórkostlegur.

Þýska liðið keyrði yfir Nantes, ekki síst í síðari hálfleik þegar ekki stóð steinn yfir steini. Mestur var munurinn 11 mörk.
Líkt og úrslitaleik Meistaradeildar fyrir fjórum árum þegar Nantes mætti Barcelona þá voru leikmenn Nantes ekki tilbúnir í viðureigna í dag. Þeir voru eins og hvolpar í höndum þýska liðsins sem er sannarlega ekki árennilegt.
Anton Gylfi Pálsson og Jónast Elíasson dæmdu leikinn ágætlega en um stóru ákvörðun þeirra er nánar fjallað hér.
Anton og Jónas sýndu þeim besta rauða spjaldið
Mörk Füchse Berlin: Tim Freihöfer 10, Lasse Andersson 7, Nils Lichtlein 5, Fabian Wiede 4, Mathias Gidsel 2, Hákun West av Teigum 2, Max Darj 1, Matthes Langhoff 1, Jan Grünfer 1, Mijajlo Marsenic 1.
Varin skot: Dejan Milosavljev 15, 38,4%.
Mörk Nantes: Nicolas Tournat 6, Valero Rivera 3, Julien Bos 3, Kauldi Odriozola Yeregui 3, Aymeric Minne 2, Ayoub Abdi 2, Rok Ovnucek 2, Thibaud Briet 1, Noam Leopold 1.
Varin skot: Ivan Pesic 5, 19,2% – Ignacio Biosca García 4, 23,5%.
Handbolti.is er í Lanxess Arena í Köln og fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.