Nantes vann öruggan sigur á Barcelona í leiknum um bronsverðlaunin í Meistaradeild Evrópu í handknattleik í Lanxess Arena í dag, lokatölur, 30:25. Einnig munaði fimm mörkum á liðunum að loknum fyrri hálfleik, 14:9.
Nantes hefur þrisvar komist í úrslitahelgi Meistaradeildar og alltaf farið heim með verðlaun, 2018 og 2021 voru það silfurverðlaun en bronsverðlaun að þessu sinni.
Leikmenn Nantes höfðu meiri vilja og áhuga á leiknum í dag frá fyrstu mínútu. Þeir skoruðu tvö fyrstu mörkin og gáfu tóninn. Nantes lék góðan varnarleik, ekki síst í fyrri hálfleik auk þess sem Króatinn Ivan Pesic varði vel í markinu í kveðjuleik sínum.
Barcelona hresstust aðeins um tíma í síðari hálfleik en það var ekki til neins. Franska liðið lét ekki bronsverðlaun sér úr greipum ganga. Minnstur var munurinn þrjú mörk en lengst af var forskot Nantes fjögur til fimm mörk.
Evrópumeistarar síðasta árs fara tómhentir heim og hálfgert með skottið á milli lappanna eftir slakan leik í dag.
Allt annað og betra ástand var á keppnisgólfinu í dag en í leikjum gærdagsins.
Mörk Nantes: Kauldi Odriozola Yeregui 6, Valero Rivera 4, Ayoub Abdi 4, Nicolas Tournat 4, Thibaud Briet 3, Romain Lagarde 3, Aymeric Minne 2, Julien Bos 2, Noam Leopold 2.
Varin skot: Ivan Pesic 14, 40% – Ignacio Biosca García 0.
Mörk Barcelona: Melvyn Richardson 8, Dika Mem 5, Aleix Gómez Abelló 4, Hampus Wanne 2, Timothey N’guessan 2, Jonathan Carlsbogard 1, AitorAriño Bengoechea 1, Luis Diogo Da Sousa Frade 1, Javier Rodríguez Moreno 1.
Varin skot: Emil Nielsen 9, 28,1% – Vincent Gérard 1, 12,5%.
Úrslitaleikur Füchse Berlin og SC Magdeburg hefst klukkan 16. Fylgst verður með leiknum í textalýsingu á handbolti.is.
Handbolti.is er í Lanxess Arena og fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.