„Ég er alls ekki ósáttur við þennan riðil. Kannski hefðum við getað verið heppnari en við hefðum líka getað verið óheppnari,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson um andstæðinga íslenska landsliðsins í riðlakeppni Evrópumótsins 2026 sem leikinn verður í Kristianstad í Svíþjóð 16., 18. og 20. janúar. Dregið var í riðla á dögunum og verða andstæðingarnir Ungverjar, Ítalir og Pólland.
Það hefur gengið á ýmsu
„Það er ljóst að þetta verður krefjandi riðill. Við þekkjum söguna um leiki okkar við Ungverja á stórmótum. Það hefur gengið á ýmsu,“ segir Snorri Steinn en íslenska landsliðið hefur verið með ungverska landsliðinu í riðli á undangengnum þremur Evrópumótum auk heimsmeistaramótsins 2023. Á síðastnefnda mótinu var einnig leikið í Kristianstad.
Óútreiknanlegur þjálfari
„Ítalir í fyrsta leik verða erfiðir. Í augu marga verður það eflaust álitinn auðveldur leikur. Sú verður ekki raunin. Ítalir voru með á HM í janúar og stóðu sig vel. Þeir voru frábærir í undankeppni EM í vetur. Léku í riðli með Spánverjum og Serbum og gerðu það gott og komust áfram. Ítalska liðið er öflugt auk þess að vera með skemmtilegan og óútreiknanlega þjálfara,“ segir Snorri Steinn og vísar þar til Þjóvðerjarns Bob Hanning sem tók við þjálfun ítalska landsliðsins í febrúar.
Pólverjar, þriðji andstæðingurinn í riðlinum eru einnig skeinuhættir. Spænskur þjálfari tók nýverið við pólska landsliðinu. Hann á að koma því í fremstu röð á nýjan leik eftir nokkur vonbrigðamót.
Fara áfram með tvö stig
„Þótt riðillinn verði krefjandi þá eigum við engu að síður að gera þá kröfu að fara upp úr honum og taka með okkur tvö stig til að komast í góða stöðu fyrir milliriðil,“ segir Snorri Steinn. Tvö lið fara áfram í milliriðil með liðum úr D og E-riðlum. Miklu máli skiptir að taka með sigur inn í milliriðlakeppnina
„EM er þannig að ekki má slaka á í einum einasta leik. Ef menn slaka í einum leik þá verður þeim refsað. Refsingin getur verið rándýr,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik í samtali við handbolta.is.
Sjá einnig:
Leiktímar Íslands á EM 2026 staðfestir
Annað EM í röð verður Ísland í riðli með Ungverjalandi
A-landslið karla – fréttasíða.