- Auglýsing -
Vonir íslenska landsliðsins um sæti í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í handknattleik karla eru enn fyrir hendi þótt vissulega hafi tapið fyrir Svíum í kvöld dregið úr þeim vonum.
Leikir lokaumferðarinnar á sunndaginn: Grænhöfðaeyjar – Ungverjaland, kl. 14.30. Brasilía – Ísland, kl. 17. Svíþjóð – Portúgal, kl. 19.30.
Til þess að íslenska landsliðið nái öðru sæti riðilsins þegar dæmi verður að gert upp þarf eftirtalið að ganga upp:
*Ísland verður að vinna Brasilíu.
*Grænhöfðaeyjar verða að vinna stig af Ungverjum. Eitt nægir.
*Portúgal má alls ekki vinna Svíþjóð.
Staðan í milliriðli 2:
Svíþjóð | 4 | 4 | 0 | 0 | 132 – 103 | 8 |
Portúgal | 4 | 2 | 1 | 1 | 116 – 101 | 5 |
Ísland | 4 | 2 | 0 | 2 | 128 – 121 | 4 |
Ungverjaland | 4 | 2 | 0 | 2 | 106 – 117 | 4 |
Brasilía | 4 | 1 | 1 | 2 | 101 – 110 | 3 |
Grænh.eyjar | 4 | 0 | 0 | 4 | 108 – 139 | 0 |
HM 2023 – Milliriðlar, leikjadagskrá, staðan
- Auglýsing -