Garðar Ingi Sindrason, leikmaður FH, var afskaplega svekktur eftir að liðið tapaði með fjórum mörkum fyrir erkifjendum sínum í Haukum í undanúrslitum Powerade bikarsins í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld.
„Þetta var ógeðslega svekkjandi og mikil vonbrigði með það hvernig við komum inn í leikinn. Við koxum bara í sóknarleiknum. Varnarleikurinn var flottur að mínu mati. Þannig fer þetta,“ sagði Garðar Ingi í samtali við handbolta.is.
Ákafi Hauka fleytti þeim í úrslit í 10. sinn – sóknarleikurinn brást FH
Seint í leiknum vann FH boltann og gat minnkað muninn niður í eitt mark. Svo virtist sem brotið hafi verið á Jakobi Martin Ásgeirssyni þegar hann losaði boltann en ekkert var dæmt.
Svekktur með eigin frammistöðu
„Mér sýndist leikmaður Hauka rífa hann niður en boltinn fer bara eitthvað. Mér fannst þetta vera aukakast eða tvær mínútur. Það var þannig frá mínu sjónarhorni,“ sagði hann, spurður hvernig atvikið hafi horft við sér.
Garðar Ingi skoraði sex mörk úr tíu skotum og gaf auk þess fimm stoðsendingar. Hann kvaðst hins vegar svekktur með eigin frammistöðu og sömuleiðis liðsins þegar kom að sóknarleiknum.
„Já, ég var svekktur með frammistöðu okkar sóknarlega og frammistöðuna mína í dag. Ég var bara ekki nægilega góður,“ sagði Garðar Ingi Sindrason við handbolta.is.



