„Ég á von á jöfnum leik. Vonandi fáum við jafnan leik, það væri draumur. Þetta á að vera góður bikarúrslitaleikur,“ sagði Grétar Áki Andersen, þjálfari kvennaliðs ÍR, í samtali við handbolta.is, beðinn um að spá í úrslitaleik Hauka og Vals í Powerade bikar kvenna í dag. Leikurinn hefst klukkan 15.30 og fer fram í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum.
Í undanúrslitum á miðvikudagskvöld unnu Haukar góðan þriggja marka sigur á Fram og Valur vann KA/Þór með sjö mörkum.
Munar um að fá Theu aftur
„Haukarnir eru á uppleið, sýndu góða frammistöðu á móti Fram í seinni hálfleiknum. Í fyrri hálfleiknum var þetta svolítið þannig að bæði liðin voru svolítið stressuð. Seinni hálfleikurinn var mjög flottur hjá þeim, þær komu virkilega flottar út í hann.
Valur náði að rúlla ótrúlega vel á liðinu í fyrri leiknum þannig að þær koma kannski aðeins ferskari inn í þetta. Thea [Imani Sturludóttir] er komin inn á parketið, eða dúkinn öllu heldur. Það munar alveg þvílíkt um það fyrir Val. Ég held að þetta verði jafn leikur,“ sagði Grétar einnig.

Skiptir engu máli að Haukar séu á heimavelli
Þrátt fyrir að Haukar leiki úrslitaleikinn á heimavelli telur hann það ekki gefa liðinu forskot.
„Nei, ég held að það skipti ekki máli. Mér finnst þetta vera allt annað. Það skiptir engu máli hvort þetta séu Ásvellir eða ekki. Það er allt annað þegar þú ert kominn með Val á fullum Ásvöllum fyrir þennan leik, þá ertu kannski kominn með 2.000 manns.
Síðan er allt annað dýr að mæta Val heldur en einhverjum öðrum í úrslitaleik. Þetta er lið sem er búið að vinna allt sem er hægt að vinna það oft og það lengi að þetta verður alltaf erfitt fyrir Hauka að vinna. En ef þær gera það verður það þvílíkt vel gert,“ sagði Grétar.
Valur vinnur ef Hafdís sýnir sitt rétta andlit
Velkist hann ekki í vafa um hvar leikurinn muni vinnast. Frammistaða landsliðsmarkvarðanna Hafdísar Renötudóttur hjá Val og Söru Sif Helgadóttur hjá Haukum muni þar vega þyngst.
„Það er mjög leiðinlegt að segja alltaf það sama þegar maður horfir á þennan leik, en ef Hafdís verður eins og hún er alltaf, hún sjálf, þá er það ekki spurning. Hún var einhvern veginn ekki alveg lík sjálfri sér á móti KA/Þór en tók samt svona augnabliks bolta, sem gerði það að verkum að Valur var allt í einu kominn í 3-5 marka forystu.
Hafdís mun vega ótrúlega þungt og það verður það sama hinum megin. Um leið og Haukar tóku forskotið í sínum leik var Sara með 3-4 varða bolta. Þetta verður einvígi markmannanna og ég held að Valur muni taka það út frá því,“ sagði Grétar Áki Andersen við handbolta.is.
Miðasala á úrslitaleiki karla og kvenna fer fram á stubb.is.


