Dregið var í dag í riðla Meistaradeildar kvenna í handknattleik fyrir næsta keppnistímabil. Flautað verður til leiks í deildinni 6. september. Györi frá Ungverjalandi vann keppnina í vor. Liðið leikur í A-riðli er m.a. með Esbjerg og Metz sem einnig komust í undanúrslit.
Riðlaskiptingin verður sem hér segir:
A-riðill:
Storhamar Handball Elite- Noregur
Metz Handball – Frakkland.
Györi Audi ETO KC – Ungverjaland.
BV Borussia Dortmund – Þýskaland.
Team Esbjerg – Danmörk.
Gloria Bistrita – Rúmenía.
OTP Group Buducnost – Svartfjallaland.
DVSC Schaeffler – Ungverjaland.
B-riðill:
HB Ludwigsburg – Þýskaland.
Odense Håndbold – Danmörk.
CSM Bucuresti – Rúmenía.
Brest Bretagne Handball – Frakkland.
FTC-Rail Cargo Hungaria – Ungverjaland.
HC Podravka Vegeta – Króatía.
Krim Mercator Ljubljana – Slóvenía.
Ikast Håndbold – Danmörku.