- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Þóra Lind og Aníta Rut áfram í Úlfarsárdal

- Auglýsing -

Þóra Lind Guðmundsdóttir og Aníta Rut Eggertsdóttir, leikmenn Fram, hafa báðar skrifað undir nýja samninga við handknattleiksdeild félagsins. Samningar beggja eru til næstu tveggja ára.

Þóra Lind er 18 ára vinstri hornamaður sem hefur leikið með meistaraflokki, Fram 2 í Grill 66 deildinni og 3. flokki á yfirstandandi tímabili. Hún hefur leikið fjóra leiki í Olísdeildinni í vetur.


„Þóra kemur úr mikilli Framfjölskyldu en foreldrar hennar hafa verið virk hjá okkur í starfinu sem og bræður hennar tveir. Við erum lánsöm að njóta krafta Þóru áfram og hlökkum til að fylgjast með framþróun hennar á næstu tímabilum!“ sagði í tilkynningu handknattleiksdeildar Fram.

Aníta Rut er aðeins 16 ára gömul vinstri skytta sem hefur mestmegnis leikið með Fram 2 og 3. flokki en sömuleiðis einn leik í Olísdeildinni með meistaraflokki á tímabilinu.

„Aníta hefur sýnt mikla vinnusemi og vilja hjá okkur á æfingum og sóst eftir aukaæfingum sem er mjög ánægjulegt að fylgjast með. Við vonum svo sannarlega Aníta uppskeri eins og hún sáir, við fylgjumst spennt með!“ sagði í tilkynningu handknattleiksdeildar Fram.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -