- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Þórður Magnús verður áfram á milli stanganna hjá Gróttu

- Auglýsing -

Þórður Magnús Árnason hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Gróttu til tveggja ára eða til loka tímabilsins 2028. Þórður er 19 ára gamall og leikur sem markvörður.


Þórður kemur úr öflugum 2006-árgangi hjá félaginu sem endaði í 2. sæti á Íslandsmótinu með 3. flokki á síðustu leiktíð. Liðið varð enn fremur bikarmeistari þar sem Þórður átti stórleik.

„Það eru virkilega góð tíðindi að Þórður Magnús verði áfram hjá Gróttu enda hefur hann myndað öflugt markmannsteymi með Hannesi Pétri Haukssyni í vetur. Þórður er framtíðarleikmaður félagsins og eru miklar vonir bundnar við hann á næstu árum,“ segir í tilkynningu Gróttu.

Grótta féll úr Olísdeild karla síðasta vor og etur nú kapphlaup við Víking um efsta sæti Grill 66-deildarinnar sem veitir keppnisrétt í Olísdeildinni á næsta keppnistímabili.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -