- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Þorgils Jón klár í slaginn með Val frá 1. febrúar

Þorgils Jón Svölu Baldursson mætir á ný til leiks með Val í næstu viku. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Handknattleiksmaðurinn Þorgils Jón Svölu Baldursson gengur á ný til liðs við Val og verður gjaldgengur með liðinu frá og með 1. febrúar eftir því sem fram kemur í tilkynningu handknattleiksdeildar Vals í dag. Þorgils Jón gekk til liðs við HK Karlskrona í Svíþjóð sumarið 2024. Ljóst er að um töluverðan liðsauka er að ræða fyrir Óskar Bjarna Óskarsson og Valsliðið fyrir átökin sem framundan er í Olísdeildinni.


Þorgils Jón hefur verið frá keppni síðan í október vegna þrálátra nárameiðsla. Hann sagði við handbolta.is í desember að meiðslin hafi verið einstaklega þrálát. Þorgils Jón kom heim til þess að leita bót meina sinna enda virtust Svíar standa ráðþrota andspænis þeim.

Þorgils Jón hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Val. Hann er 25 ára gamall og uppalinn Valsari og hóf ungur að gera sig gildandi með meistaraflokksliðinu og var m.a. í Íslands- og bikarmeistaraliði Vals 2017 og síðar aftur Íslands- og bikarmeistari 2021 og 2022.

Fleiri litu til Þorgils

Samkvæmt heimildum handbolta.is var austurríska liðið Alpla Hard með Þorgils Jón til skoðunar í upphafi árs og þá með skammtímasamning í huga. Ekkert varð úr þegar á hólminn var komið.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -