- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Þórsarar fengu þrenn verðlaun í lokahófi HSÍ

Oddur Gretarsson svífur inn úr vinstra horni í leik með Þór. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -


Þórsarinn Oddur Gretarsson var valinn besti leikmaður Grill 66-deildar karla á nýliðnu keppnistímabili. Oddur, sem var í sigurliði deildarinnar, hreppti einnig hnossið í kjöri á besta sóknarmanni Grill 66-deildar.


Verðlaun voru afhent í lokahófi HSÍ síðdegis til þeirra sem þóttu standa sig best í Grill 66-deild karla.

Samherji Odds hjá Þór, Brynjar Hólm Grétarsson, skaraði fram úr öðrum varnarmönnum deildarinnar. Carlos Martin Santos þjálfari Selfoss varð fyrir valinu þegar litið var til þjálfara Grill 66-deildarinnar. Santos stýrði Selfossi til sigurs í umspili við Gróttu þar sem í húfi var sæti í Olísdeildinni á næstu leiktíð.

Verðlaunahafar í Grill 66-deild karla:
Þjálfari ársins: Carlos Martin Santos, Selfossi.
Besti leikmaður: Oddur Gretarsson, Þór.
Besti sóknarmaður: Oddur Gretarsson, Þór.
Besti varnarmaður: Brynjar Hólm Grétarsson, Þór.
Besti markmaður: Jón Þórarinn Þorsteinsson, Selfossi.
Efnilegasti leikmaður: Gunnar Róbertsson, Val2.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -