-Auglýsing-

Þórsarar hafa samið við ungan Dana

- Auglýsing -

Þórsarar á Akureyri eru byrjaðir að styrkja lið sitt fyrir næsta keppnistímabil í Olísdeild karla. Í dag var tilkynnt að liðlega tvítugur Dani, Bertram Simonsen, gangi til liðs við félagið í sumar. Simonsen leikur nú með Lemvig-Thyborøn Håndbold og er samherji Jóns Ísaks Halldórssonar sem á m.a. ættir að rekja til Akureyrar.


Simonsen er hægri handar miðjumaður og einnig vinstri skytta og öflugur varnarmaður, fæddur árið 2004 í Herning á mið-Jótlandi. Hann er sagður hafa leikið með yngri flokkum Herning, FH og Skanderborg ásamt því að hafa spilað með yngri landsliðum Danmerkur.

Simonsen er enn að leika með Lemvig-Thyborøn Håndbold. M.a. skoraði hann fimm mörk í jafntefli við TIK-Taastrup, 31:31, síðasta laugardag. Lemvig-Thyborøn Håndbold situr í sjöunda sæti af 14 liðum næstefstu deildar þegar ein umferð er eftir.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -